Sigrún

14.05.2007 19:48:11 / sigruno

Skólinn búinn og sumarfrí framundan

hæjj:D

Heyrðu heyrðu.... ekki einu sinni 10 dagar á milli blogga ;) En já ég var í mínu seinasta prófi í dag, stærðfræði 203 og það gekk bara mjög vel, alveg öll þessi 6 dæmi:D Biggi Rafns er bestur í að gera próf;) oog ég er nú þegar búin að fá útúr 2 prófum... nát 103 og dösnku 202 og náði báðum með 78) mjög svo sátt við það:D

Ég verð að vinna í Vegagerðinni í sumar ásamt Steinunni Ósk... ég veit... við gerum allt saman:D en já ég er semsagt eða réttara sagt, við erum að byrja þar næsta mánudag eða 20. maí... vá hvað tíminn er fljótur að líða8|, og við verðum að þrífa stikur og slá og eitthvað meira með fram vegum Skagafjarðar... og það besta er að við verðum að vinna úti... það er geggjað eftir að hafa verið að vinna í KS-Varmahlíð seinustu tvö ár:D Svo verð ég væntanlega eitthvað að þjálfa í sumar hjá Smáranum á kvöldin, mjög ánægð með það:)

Skrapp aðeins í hinn fjörðinn minn í dag, Akureyri. Var að keyra með systur minni þar sem að hún þurfti að fara til Kírópraktor (hef ekki hugmynd um hvernig á að skrifa þetta orð) en allavega þá bað hún mig um að keyra heim vegna þess að maður verður víst svo þreyttur eftir að vera í svona tíma. En allavega, þá rata ég ekki um Akureyri þegar að ég er að keyra... ég get alveg ratað þegar að ég er farþegi... en þegar að ég keyri þá veit ég ekkert hvert ég er að fara:S of mikið að hugsa um annað en að athuga hvert maður er að fara eða hvað maður er staddur.

En ég er að pæla í því að reyna að fá bílinn hjá mömmu og pabba lánaðann og skreppa út á krók með henni Helgu Sjöfn.

En smá fróðleikur hérna í lokinn.

  • Vissuð þið að fólk byrjar að minnka eftir þrítugt?
  • Og að konur heyra betur en karlar?
  • Vissuð þið að meðalbrjóstastærð er 36C. Fyrir 10 árum var hún 34B?
  • Og vissuð þið að fjórir páfar hafa dáið á meðan þeir tóku þátt í ,,kynferðislegum athöfnum"?

Kv. Sigrún;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 22:39:47 / sigruno

My heart is an empty room

Sælt veri fólkið

Ég á að vera að læra undir íslenskupróf en einhvern veginn nenni ég því engan veginn, wonder why:$. En já það er orðið dálítið langt síðan ég bloggaði seinast en það er aðallega vegna þess að ég bara hef ekki nennt því:S en svona til að leyfa ykkur að fylgjast með því sem að hefur drifið á mína daga frá því ég bloggaði seinast ætlla ég að koma með smá punktablogg.

  • páskarnir voru æðislegir
  • át páskaegg
  • fór á páskaball á Blönduós, mjög fínt þar
  • afmæli hjá Hörpu fyrir það
  • steinunn fékk bílprófið:haha:
  • ball á mælifell sem verður seint gleymt:D
  • og þá sömuhelgi var söngkeppni framhaldsskólanema á Akureyri og auðvitað skellti maður sér þangað, það var líka æðislegt:D
  • síðann byrjaði skólinn svona af alvöru
  • afi minn lést eftir margra ára sjúkdóm:|
  • seinustu þrjár vikur hafa verið þær bestu sem ég hef upplifað en jafnframmt þær verstu í senn.
  • ég fékk bílprófið:D believe it or not;)
  • prófin er byrjuð
  • ball með Geira í gær, sem að var svona allt í lagi, en ég náði ekki að skemmta mér nógu vel.

Jæja, þarna fenguð þið smá vitund um það hvernig ég hef haft það seinasta mánuðinn:)

Ég veit ekki alveg hvað ég á að vera að skrifa meira. Sit bara inn í eldhúsi að horfa á Dexter og reyna að gera hvað sem er til þess að hugsa ekki of mikið.

En já ég settist fyrir framan sjónvarpið í gærkveldi og þá var mynd að byrja á stöð tvö sem að heitir Elizabethtown. Ef að ég ætti að láta mér detta góða þýðingu fyrir nafnið á myndinni í hug þá væri það væntanlega Elísarbetubær.... en nei, hún var þýdd ,, Jarðarförin", en það er aðallega vegna þess að myndinn fjallar um ungann strák sem að missir pabba sinn og er að fara á jarðarförina hans og kinnist einhverri stelpu. Þetta er svo fáránlegt hvernig þessar íslensku þýðingar eru á myndum, hafði  ekki tekið eftir því?

En þetta var bara eitthvað sem að ég þurfti að koma frá mér. Ætla að reyna að halda áfram að læra í Snorra-Eddu:S Þangað til næst.

Hver veit nema að það líði minna en mánuður þangað til að ég bloggi næst.... kemur í ljós;)

Kv. Sigrún;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 17:23:26 / sigruno

Nú er það bjart :)

jæja núna ætla ég að blogga;)

Mikið er búið að ske síðan seinast..... en ég nenni ekki að telja það upp enda eruði örugglega búin að lesa margt af því annarsstaðar :) (söngvakeppnin, opnu dagarnir og miðannarprófin).

Ég var að eignast tvo litla frændur í vikunni og er alveg í skýjunum yfir því :D ....svo var líka verið að skýra hjá henni Kristínu Höllu og bara allir að drita niður börnum :D. Get ekki beðið eftir að fá að sjá litlu krílin:haha:

Við Steinunn búum enþá upp í Háuhlíð og gengur það bara mjög fínt.... maður getur hlegið endalaust af vitleysunni sem að kemur upp úr henni Steinunni:haha:..... t.d. um daginn var litli heimalingurinn hjá okkur (Helga Sjöfn) og Steinunn spurði hana hvaða mánaðardagur 9.mars væri ;)..... spurning um að hugsa hvað maður ætlar að segja áður en maður segir það..... en ég ætti sammt ekki að vera að segja neitt mikið:lol:;)

Árshátíð NFNV var um seinustu helgi (10. mars) og var hún æðisleg:D Á árshátíðarundirbúningsnefndin (vá... langt orð) hrós skilið:D. Auddi var veislustjórinn og fór hann á kostum, var grófur, skaut á kennarana og sýndi létt dansatriði:D. Söngatriðin voru glæsileg og var frumsamda lagið hans Helga Sæmundar (Inga Birna söng) sem hann tileinkaði Unni Bettý virkilega fallegt og stóðu allir upp og klöppuðu fyrir honum í lok lagsins. Einnig voru 3 myndbönd sýnd, 2 frá krossarahópnum og 1 frá Team Víking. Voru þau virkilega vel gerð og skemmtilegt að horfa á þau;)

Ballið var líka mjög fínt, nema að við komumst frekar seint á það en skemmtum okkur alveg þrusu vel á þeim tíma sem við vorum þar:D Eftir ballið fórum við svo bara heim og ætlaði heimalingurinn að fá að gista hjá okkur Steinunni. Stuttu eftir að við vorum komnar heim og rétt búnar að skipta um föt og svoleiðis komu nokkrir úr gamla bekknum í heimsókn og var spjallað saman fram að 6 um morguninn.... dóu sumir:)

En jájá.... ég er búin að vera að reyna að vinna í ritgerð um helgina.... það gengur ekkert nógu vel:$..... svo að ég er að pæla í því að reyna að halda áfram með hana svo ég kveð að sinni:)

Og já ég vil líka benda á að það eru myndir af ballinu á www.b.c.is/daleiddar_2 eru myndirnar hér að neðan þaðan...... og svo er líka þrusu gott blogg þar sem að Steinunn gerði ;)

Jói drapst :D

 Ég og Helga fyrir ballið

Steinunn, Helga og Óli Einar :)

Jebb.... Ívar mætti á ballið

Sigrún kveður;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 21:43:02 / sigruno

Stutt blogg

Jæja ég var að setja inn örfáar myndir svona aðallega til að prufa hvernig þetta virkar;) en ég ætla ekkert að blogg núna, er með hausverk og ætla bara að fara að chilla fyrir framan sjónvarpið. Reyni að blogga á morgun :)

Sigrún;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.01.2007 14:41:50 / sigruno

Nýtt ár og ný íbúð:)

Jæja, það er langt síðan að ég bloggaði seinast en ég hef bara ekki haft tíma til þess, allveg nóg búið að vera að gera. Ég ætla bara að koma með nokkra punkta um hvenig seinustu tvær vikur hafa verið:)

  • Aðfangadagur var æðislegur og fékk ég margt flott í jólagjöf og mikið í íbúðina:)
  • Á miðnætti aðfangadagskvölds var farið í messu í Víðimýrarkirkju:)
  • Jóladagurinn fór í það að borða, fyrst í jólaboði á Akureyri og svo heima um kvöldið þegar að systir mömmu og fjölskylda hennar komu í kvöldkaffi.
  • Framm að áramótum var bara slakað á og notið tímans með fjölskyldunni;)
  • Á Gamlársdag var borðað æðislegan mat, farið á brennuna og horft á áramótaskaupið.
  • Steinunn kom svo til mín og fórum við saman með rútunum á áramótaball á Blönduós.
  • Ballið var virkilega gott og mikið af fólki:D;)
  • Nýársdagurinn fór í hvíld:lol:
  • 2.jan fórum við Steinunn til RVK, Helga hafði farið 1.jan og ætluðum við að hittasta allar og fara á útsölur, bíó og keilu..... sem var yndislegt:haha:
  • 4.jan fór ég heim og komu stelpurnar heim 5.jan og 6.jan.
  • 5.-7. jan fór í að undirbúa fluttninginn í íbúðina sem við Steinunn erum byrjaðar að leigja, og vorum við endarlega fluttar 7.jan og sváfuð þar okkar fyrstu nótt:haha:
  • Þá byrjaði skólinn....
  • Ég er í 23 einingum og er bara frekar sátt með stundaskránna mína... aldrei búin seinna en 16:10 í skólanum sem er sweet:)
  • Fyrsta vikan í skólanum og íbúðinni var bara virkilega næs og semur okkur virkilega vel:haha:

Seinasta ár var gott á pörtum en gerðist margt sem að skyggði líka á það, og var það í rauninni eitt erfiðasta árið hingað til. Mikil sorg og mikill sökknuður, en miðað við byrjunina á þessu ári vonast ég til þess að þetta ár verði betra:)

Margt gerðist á seinasta ári sem að er minnisstætt eins og t.d. héldum við 10.bekkur Varmahlíðarskóla árshátíðina okkar í Janúar, og settum við upp ásamt hjálp leikstjórans okkar Jósu leikritið Rauða Millan:D Það var æðislega gaman að leika í þessu og var þetta góður hópur.

Fór ég á fyrsta ballið mitt, sem var 13. ballið í Miðgarði..... varð ekki fyrir vonbryggðum með það sem fyrsta ball:D:D

12. feb varð ég 16 ára8):haha:

Í maí gerðist margt, fyrst ber að nefna samræmduprófin sem að gengu bara alveg ágætlega en það lenti frekar illa á hjá mér þar sem að mikið var í gangi í mínu lífi og var ég hálf utan við mig. En sem betur fer náðist allt saman með alveg ágætis einkunum.

Þegar að prófin voru búin fórum við 10.bekkur í skólaferðalag til Danmerkur, sem var æðisleg ferð til að enda þessa 10 ára skólagöngu okkar saman:D

Þegar heim var komið voru skólaslit og svo farið að vinna í KS-Vamahlíð. Og fór sumarið aðallega í það og að þjálfa fótbollta á kvöldin fyrir UMS Smára.

Landsmót hestamanna var mjög skemmtilegt og fór maður þangað alltaf eftir vinnu eða fyrir vinnu. Það var bara geðveikt skemmtilegt:haha:

Verslunarmannahelgin var líka bara fín..... skrapp til Akureyrar á laugardeiginum eftir vinnu og skellti mér á ball með DJ Páll Óskar.... ég varð fyrir miklum vonbrygðum með það.... entist ekki lengi á því.... röllti niður í bæ og hitti þar eitthvað af liði:) Á sunnudeiginum átti systir mín afmæli og héllt upp á það fyrir ball í Árgarði og svo var bara skellt sér á ball strax eftir afmæli:haha: Það var virkilega skemmtlegt.....

Í september byrjaði skólinn og fór ég í fjölbraut á króknum á félagsfræðibraut-íþróttastíg :) og er bara búið að ganga vel hingað til og búin að kynnast fullt af æðislegu fólki:D

Ég fór í Stafnsrétt að ná í mínar æðislega sætu kindur.....og heimtaði ég þær allar:)

Laufskálaréttarball:!:...... þarf að seigja meira:haha:

Í oktomber voru miðannarpróf sem að gengu bara ágætlega:) Og í desember voru lokapróf og náðist allt og var ég bara virkilega sátt:D

 Í nóvember settti FNV upp leikritið Draumalönd og var ég að vinna í leikmunadeild. Var það æðislega gaman og frumsýningar- og lokapartýin voru æðisleg:D

En jájá.... ég held að það sé komið nóg blogg í dag.... en ég næ örugglega ekkert að blogga í vikunni þar serm að netið er ekki enn komið í íbúðina, en það er verið að senda búnaðinn til landsins eða eitthvað..... veit ekki alveg... en allavega er þetta komið í dag;):D

Kv.Sigrún:D


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 19:39:33 / sigruno

Gleðileg Jól :D

Vá maður, jólin eru núna eftir tæpan klukkutíma og ekki vottur af jólaskapi komið í mann:S. Undirbúningurinn fyrir þessi jól er búinn að vera mjög rólegur, byrjaði að kaupa jólagjafirnar fyrir 4 dögum og kláraði þær í gær:) mjög sátt;)


En ég ætlaði nú aðalega bara að óska öllum gleðilegra jóla og farsæls árs. Borðið yfir ykkur og hafið það notalegt með fjölskyldu og vinum :haha:

Skellti svo með einu af mínum uppáhalds jólalögum :D

Ó, helga nótt, þín stjarnan blikar blíða
þá barnið Jesús fæddist hér á jörð.
I dauðamyrkrum daprar þjóðir striða,
uns Drottinn birtist sinni bamahjörð,
Nú glæstar vonir gleðja hrjáðar þjóðir
því guðlegt ljós af háum himni skín.
Föllum á kné. -Nú fagna himins englar!
Frá barnsins jötu blessun streymir blítt og hljótt til þín.
Ó, helga nótt, ó, heilaga nótt.

Vort trúarljós, það veginn okkur vísi.
Hjá vöggu hans við stöndum hrærð og klökk
og kyrrlát stjarna kvöldsins öllum lýsi
er koma vilja hér í bæn ug þökk.
Nú konungurinn, Kristur Drottinn, fæddist
hann kallar oss í bróðurbæn til sín.
Föllum á kné. -Nú fagna himins englar!
Hjá lágum stalli lífsins kyndill ljómafagur skín.
Ó, helga nótt, ó, heilaga nótt.
 

Jólakveðja
Sigrún :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 23:35:00 / sigruno

Prófin búin!!!

Loksins er maður búin í prófunum.... reyndar var ég bara í sex, en það er bara andskoti nóg!!! Var sammt ekki nógu sátt með frammistöðuna í dönskunni og stærðfræðinni:S vonandi samt að það hafi náðst;)

En já, ég var að koma heim frá Rvk og fólk þarf nú aðeins að fara að rifja upp umferðareglurnar:S ekki það að ég sé eitthvað góð í þeim sjálf:lol:. Það fer alveg ótrúlega í mig þegar að fólk gefur stefnuljós inn á hryngtorg en ekki út af þeim, ég meina hver er tilgangurinn í því að gefa stefnuljós inn á það eina sem þú getur keyrt inn á.... það er bara heimskulegt, og svo gefur fólkið ekki stefnuljós út svo að fólk veit ekkert hvar eða hvenær bíllinn keyrir útaf hryngtorginu:S. En ég er ekkert bara að tala um Reykvík, þetta er bara allsstaðar og sést skýrlega á tölu látinna í umferðinni þetta árið, en sú tala er komin upp í 29 manns eftir seinustu helgi:|. Ég veit auðvitað ekki aðdragandann af öllum slysunum en mikið af þeim er af völdum framúrakstir og ofsaaksturs. Og núna er umferðaráðið og ríkisstjórnin búin að taka til þess ráðs að lækka sektunar hraðann, hækka sektir og hækka bílprófsaldurinn:|. Vonandi að það hafi auðvitað áhryf en einhvernveginn hef ég ekkert of mikla trú á þessu:S veit ekki heldur hvað gæti virkað.

Samt fatta ég ekki hvernig sumt fólk tekur það ekki til sín að svona margir hafi látist í umferðinni og eru að taka framúr á blindhæð eða þannig að þau rétt sleppi framhjá bílnum sem að þau eru að taka framúr áður en bíllinn á móti keyri framan á þau. Fólk þarf að læra að anda og taka því rólega:).

Betra er að koma seint en aldrei!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 20:28:29 / sigruno

Prufa

Jæja, ég ætla að athuga hvort ég geti bloggað eitthvað núna, gekk ekki alveg upp seinast :lol: en hvað með það, varð forvitin og ætla að reyna. Kemur samt ekkert núna fyrr en eftir prófin, en þá er ég líka komin í jólafrí svo að nægur tími til að dúlla sér eitthvað við síðuna.

En þetta kemur allt í ljós;)


» 7 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
14. mars 2010